Teikningar fyrir kirkjuna tilbúnar

Teikningar arkitektastofunnar Arkþings að væntanlegri kirkju í Grafarholti, sem S.S. verktakar h/f munu reisa fyrir sóknarnefnd Grafarholtssóknar, eru nú aðgengilegar hér á vefnum, og má finna þær með því að smella hér.

Á sóknarnefndarfundi Grafarholtssóknar 17. apríl sl. var lögð fram og kynnt þessi niðurstaða dómnefndar um kirkjubyggingu safnaðarins að Kirkjustétt 8. Sóknarnefndin ákvað að fara þá leið við byggingu kirkjunnar, að auglýsa alútboð, og er það í fyrsta sinni sem slík leið er farin við kirkjubyggingu. Náið og gott samstarf er við Biskupsstofu og Kirkjuráð um framkvæmdina og  litið á verkefnið sem prófstein hvað þessa aðferð varðar.

Alls voru valdir fjórir verktakar og arkitektafyrirtæki til að taka þátt í útboðinu, sem miðaðist við að skila fullbyggðri kirkju, um 700 fermetrum að stærð í árslok 2008 fyrir 200 millj. kr. og skiluðu allir tilboðsgögnum. Sóknarnefndin skipaði sérstaka dómnefnd, sem í áttu sæti fagaðilar, til að meta tillögurnar og leggja úrskurð sinn fyrir sóknarnefnd.  Í dómnefndinni áttu sæti: Sr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur, formaður, Ingimundur Sveinsson, arkitekt, Lilja Grétarsdóttir, arkitekt, Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari og Ómar Einarsson, sviðsstjóri ÍTR.

Niðurstaða dómnefndar er sú, að taka beri tilboði S.S. verktaka h/f um kirkjubyggingu í Grafarholti og var niðurstaðan staðfest af sóknarnefnd. Í umsögn dómnefndar kemur fram að „hús, lóð og innra fyrirkomulag myndi mjög sterka og sannfærandi heild og yfirbragð kirkjunnar í senn látlaust.“ Umsjón með kirkjubygginni er í höndum bygginganefndar safnaðarins, en hana skipa Stefán Ragnar Hjálmarsson byggingatæknifræðingur, formaður, Hreinn Ólafsson, byggingatæknifræðingur og sr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur.

Gaman væri að heyra, hvernig sóknarbörnum líst á væntanlega kirkju sína!


Fleiri tillögur!

Það er best að gera tillögur Jóns Steinars Ragnarssonar um nafn á nýja kirkju sýnilegri hér á síðunni, svo að þær fari örugglega ekki fram hjá neinum:- Hæðakirkja- Upprisukirkja- Blessunarkirkja- Bæna(r)kirkja- Vonarkirkja- Friðarkirkja- Náðarkirkja- Kærleikskirkja- Sáttakirkja

 


Hvað á kirkjan að heita?

Á vef Grafarholtssóknar hefur verið sagt frá nokkrum tillögum að nafni á væntanlega kirkjubyggingu í Grafarholti. Ánægjulegt er, að frétt hefur nú birst á Morgunblaðinu og á vef þess um málið. Þó að af frétt blaðsins megi skilja, að þegar sé ákveðið að nefna kirkjuna eftir konu að tillögu sóknarprests, fer því fjarri. Engin ákvörðun hefur verið tekin um nafn á kirkju Grafarholtssóknar, en hugmyndir vel þegnar. Þær nafnatillögur, sem borist hafa umsjónarmanni síðunnar til eyrna, eru þessar:

- Auðarkirkja (hinnar djúpúðgu)
- Guðríðarkirkja
- Grafarholtskirkja
- Holtakirkja
- Kirkjuhvolskirkja
- Maríukirkja
- Reynisvatnskirkja
- Þrenningarkirkja

Í því skyni að kalla eftir fleiri tillögum og umræðum um tillögurnar, hefur þessi bloggsíða verið stofnuð um kirkju í Grafarholti og nafn hennar. Sóknarbörn og aðrir áhugasamir eru hvattir til að láta í sér heyra hér á síðunni! Hvaða nafn kjósa Grafarhyltingar helst á kirkjuna sína?


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Um bloggið

Kirkja Grafarholts

Höfundur

Grafarholtssókn
Grafarholtssókn
Hér er umræða um væntanlega kirkju í Grafarholtssókn og nafn hennar.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...24jan07_001
  • Á Lindinni

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband